Eyjafjarðarsveit óskar eftir að ráða aðstoðarskólastjóra fyrir Hrafnagilsskóla til eins árs. Ráðið verður frá frá 1. ágúst 2016 – 31. júlí 2017. Leitað er að einstaklingi sem er framsýnn í skólamálum, ótvíræður leiðtogi og fær í samskiptum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Kennaramenntun.
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða reynsla af stjórnun er æskileg.
- Reynsla af kennslu og vinnu með börnum.
- Leiðtogahæfileikar, metnaður, hugmyndaauðgi og skipulagshæfni.
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum.
Upplýsingar um starfið veitir Hrund Hlöðversdóttir skólastjóri í símum 464 8100 og 699 4209 eða í gegnum netfangið hrund@krummi.is. Umsóknarfrestur er til og með 29. mars. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.