Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 5. nóvember 2020 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í að vegtenging Hrafnagilshverfis við nýja Eyjafjarðarbraut er færð inn á skipulagsuppdrátt, skilmálum efnistöku í Eyjafjarðará breytt og ný efnistökusvæði við Kropp og við Reykhús færð inn í aðalskipulag.
Skipulagsbreytingin nær til framkvæmda sem tilgreindar eru í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og er gerð grein fyrir umhverfisáhrifum efnistökunnar í skipulagstillögunni.
Skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu mun liggja frammi á sveitarskrifstofu Eyjafjarðarsveitar milli 16. mars og 27. apríl 2021 og verður einnig á heimasíðu sveitarfélagsins esveit.is. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til þriðjudagsins 27. apríl 2021. Athugasemdir skulu vera skriflegar og skulu berast í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is eða í bréfpósti stílað á Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9 Hrafnagilshverfi, 605 Akureyri.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Breyting á aðalskipulagi: Hrafnagilshverfi - vegtengingar / Eyjafjarðará - efnistaka