30 ára aldurstakmark á tjaldsvæðinu á Bíladögum

Fréttir

Tjaldsvæðið í Hrafnagilshverfi er fjölskyldutjaldsvæði. Á því verður 30 ára aldurstakmark Bíladagavikuna og -helgina, frá miðvikudeginum 12. júní til 17. júní.

Hægt er að bóka á netfanginu sundlaug@esveit.is og í bókuninni þurfa að vera upplýsingar um:

  • aldur gesta
  • fjölda gesta
  • skráningarnúmer hýsis – eða bílnúmer ef um er að ræða tjald.
  • dagsetningar
  • hvort óskað sé eftir rafmagni
  • kennitölu þess sem bókar
  • símanúmer

Næturgæsla verður á tjaldsvæðinu þessa daga.

Við áskiljum okkur rétt til að óska eftir framvísun skilríkja við komu eða meðan á dvöl stendur.

Við bjóðum eftir sem áður yngra fjölskyldufólk en 30 ára velkomið, þ.e. fjölskyldur með börn.