376 . fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar haldinn að Syðra Laugalandi, þriðjudaginn 10. nóvember 2009 og hófst hann kl. 15:00.
Fundinn sátu:
Arnar árnason, Einar Gíslason, Reynir Björgvinsson, Karel Rafnsson, Jón Jónsson, Bryndís þórhallsdóttir, Elín Margrét
Stefánsdóttir, Stefán árnason og Jónas Vigfússon.
Fundargerð ritaði: Stefán árnason, .
áður en fundur hófst lék Elvar Jóhann Sigurðsson nemandi í Tónlistarskóla Eyjafjarðar eitt lag á gítar í tilefni af
tónleikaviku skólans.
Dagskrá:
1. 0910007F - Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 184
Fundargerð 184. fundar skólanefndar tekin til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
1.1. 0909017 - Umsókn um niðurgreiðslu leikskólagjalda
Afgreiðsla nefndarinnar er samþykkt.
1.2. 0803049 - Hönnun skólalóðar.
Deiliskipulag skólalóðar er í vinnslu hjá skipulagsnefnd.
1.3. 0806052 - Samrekstur skóla
Afgreiðsla nefndarinnar er samþykkt.
1.4. 0910014 - Undirbúningur skólanefndar að gerð fjárhagsáætlunar 2010-2011
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
1.5. 0910015 - Hlutverk skólanefndar við mat á skólastarfi
Afgreiðsla nefndarinnar er samþykkt.
1.6. 0910013 - Kynning skólastjóra á þróunarverkefninu Feneyjar
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
2. 0910008F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 124
Fundargerð 124. fundar skipulagsnefndar tekin til afgreiðslu eins og einstök erindi bera með sér.
2.1. 0804011 - Breyting á aðalskipulagi vegna efnistöku.
Tillaga skipulagsnefndar samþykkt, en efnistökusvæði í Hvammi verði haft með í umhverfisskýrslunni þannig að öll svæði sem
vitað er um og rætt hefur verið um til efnistöku verði höfð með þegar endanleg ákvörðun um auglýsingu á breytingu á
aðalskipulagi verður ákveðin.
2.2. 0911001 - Lágmarksviðmið vegna nýrra íbúðarhúsasvæða á aðalskipulagi
Afgreiðsla nefndarinnar er samþykkt.
2.3. 0903015 - Arnarholt - Umsókn um breytta landnotkun
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
2.4. 0910018 - Skólalóð - deiliskipulag
Afgreiðsla nefndarinnar er samþykkt.
2.5. 0909014 - Reiðvegur - héraðsleið 8
Elín Stefánsdóttir og Jón Jónsson tóku undir bókun formanns skipulagsnefndar. Afgreiðsla skipulagsnefndar samþykkt með 5
atkvæðum, J.J. og E.S. voru á móti.
3. 0910017 - þjónustusamningur - endurnýjun
Fyrir fundinum lá umsókn frá Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi um endurnýjun á þjónustusamningi.
Afgreiðslu frestað og óskað eftir kynningu á starfi skrifstofunnar.
4. 0911002 - Fjárhagsáætlun 2010
Rætt um fyrirkomulag á vinnudegi um fjárhagsáætlun sem ákveðin hefur verið 28. nóvember n.k.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:00