Sveitarstjórn

653. fundur 10. apríl 2025 kl. 08:00 - 09:15 Fundarstofa 2, Skólatröð 9
Nefndarmenn
  • Hermann Ingi Gunnarsson
  • Linda Margrét Sigurðardóttir
  • Kjartan Sigurðsson
  • Berglind Kristinsdóttir
  • Ásta Arnbjörg Pétursdóttir
  • Sigurður Ingi Friðleifsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Guðmundur S. Óskarsson
  • Sigríður Bjarnadóttir
Starfsmenn
  • Finnur Yngvi Kristinsson sveitarstjóri
  • Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri
 
Dagskrá:
 
Almenn erindi
1. 2502009 - Háaborg 2 - L174046 - F2219399 - Umsókn um breytingu á vinnustofu í íbúðarhús
Fyrir fundinum liggur erindi frá eiganda Háuborgar 2, þar sem sótt er um að breyta skráningu/notkun á vinnustofu (tómstundaaðstöðu samkv. fasteignaskrá) í íbúð.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að hafna erindinu á grundvelli skilmála aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar sem kveður á um þrjár byggingalóðir samtals fyrir íbúða- eða frístundahús á hverri bújörð án deiliskipulags.
 
Sveitarstjórn hafnar erindinu á grundvelli skilmála aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar sem kveður á um þrjár byggingalóðir samtals fyrir íbúða- eða frístundahús á hverri bújörð án deiliskipulags.
 
2. 2310005 - Athafnasvæði á Bakkaflöt - nýtt deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi
Kynning deiliskipulagstillögu á vinnslustigi og breytingar á aðalskipulagi fyrir athafnasvæði á Bakkaflöt lauk 3. mars sl. og bárust níu erindi á kynningartímabliinu. Nefndin fjallar um innkomin erindi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum erindum við uppfærslu skipulagstillögunar og samþykkja að auglýsa samkv. 31.gr. og 1. mgr 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
 
Sveitarstjórn felur skipulagshönnuði að hafa hliðsjón af innkomnum erindum við uppfærslu skipulagstillögunar og samþykkir samhljóða að auglýsa deiliskipulagstillöguna samkv. 31.gr. og 1. mgr 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
3. 2503048 - Hólmatröð 12 L235825 - stöðuleyfi fyrir dúkaskemmu
Sótt er um stöðuleyfi vegna 8*12m dúkaskemmu við Hólmatröð 12, sem ætluð er til geymslu á byggingarefni og búnaði á meðan framkvæmdir við Hólmatröð 3 og 12 standa yfir.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði stöðuleyfi fyrir dúkaskemmu. Stöðuleyfi gildir í eitt ár. Þá verði jafnframt skilyrt í stöðuleyfinu að sveitarfélagið geti afturkallað leyfið ef aðstæður kalla á að þörf sé fyrir sveitarfélagið að fá aðgang að umræddu landsvæði.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita stöðuleyfi fyrir dúkaskemmu. Stöðuleyfið gildir í eitt ár. Þá verði jafnframt skilyrt í stöðuleyfinu að sveitarfélagið geti afturkallað leyfið fyrirvaralaust ef aðstæður kalla á að þörf sé fyrir sveitarfélagið að fá aðgang að umræddu landsvæði.
 
4. 2503024 - Byttunes L228844 - Umsókn um framkvæmdaleyfi til landmótunar á Byttunesi
Fyrir fundinum liggur umsókn um framkvæmdaleyfi til að nýta hluta efnis sem fellur til við uppbyggingu innviða í Ölduhverfi til landmótunar á Byttunesi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt en að í framkvæmdaleyfi verði skilyrt að landhæð mótunnar fari ekki yfir veghæðir enda liggja að svo stöddu ekki fyrir hönnunargögn varðandi fyrirkomulag svæðisins.
 
Sveitarstjórn samþykkir erindið samhljóða og að framkvæmdaleyfi verði skilyrt við að landhæð mótunnar fari ekki yfir veghæðir enda liggja að svo stöddu ekki fyrir hönnunargögn varðandi fyrirkomulag svæðisins.
 
5. 2503039 - Leikskólinn Krummakot - Skóladagatal 2025-2026
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að skóladagatal Krummakots veturinn 2025-2026 verði samþykkt.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi skóladagatal Krummakots fyrir veturinn 2025-2026. Starfsemi leikskólans hefst samkvæmt því síðar en vanalega og tengist það flutningum starfseminnar í nýtt húsnæði með tilheyrandi lokun þá daga.
 
6. 2503036 - Hrafnagilsskóli - Skóladagatal 2025-2026
Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að skóladagatal Hrafnagilsskóla veturinn 2025-2026 verði samþykkt.
 
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi skóladagatal Hrafnagilsskóla fyrir veturinn 2025-2026.
 
7. 2408011 - Ósk um endurnýjun samnings við UMSE
Sveitarstjórn leggur til breytingar á samningsdrögum og felur sveitarstjóra að bera undir stjórn UMSE. Samþykki stjórn breytingarnar er sveitarstjóra falið að skrifa undir samninginn.
 
Þá kallar sveitarstjórn eftir skýrslu stjórnar, ársreikningum og samantekt á skyldum UMSE gagnvart aðildarfélögunum.
 
8. 2502037 - Fasteignir Eyjafjarðarsveitar
Umræður um jörðina að Þormóðsstöðum.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
Fundargerðir til kynningar
9. 2503044 - Norðurorka - Fundargerð 308. fundar
Fundargerð 308. fundar stjórnar Norðurorku lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
10. 2503045 - Molta - 114. stjórnarfundur
Fundargerð 114. fundar stjórnar Moltu lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
11. 2503004F - Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar - 278
Fundargerð 278. fundar skólanefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
12. 2504001F - Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 429
Fundargerð 429. fundar skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
 
Gefur ekki tilefni til ályktunar.
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15
Getum við bætt efni síðunnar?