Linda Margrét Sigurðardóttir, varaoddviti stjórnaði fundi í fjarveru Jóns Stefánssonar, oddvita.
Í upphafi fundar leitaði varaoddviti heimildar til að taka á dagskrá fundargerð 33. fundar landbúnaðar- og atvinnumálanefndar. Var það samþykkt og verður 3. liður dagskrár.
1. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 321 - 2002002F
Fundargerð 321. fundar skipulagsnefndar tekin til afgreiðslu eins og einstakir liðir bera með sér.
1.1 - 2001001 - Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu hluta Eyrarlandsvegar nr. 8494-01 af vegaskrá
Gefur ekki tilefni til ályktana.
1.2 - 2001003 - Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu Æsustaðavegar nr. 8382-01 af vegaskrá
Gefur ekki tilefni til ályktana.
1.3 - 2001002 - Vegagerðin - Tilkynning um niðurfellingu hluta Sölvadalsvegar nr. 871-01 af vegaskrá
Gefur ekki tilefni til ályktana.
1.4 - 1909004 - Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar breyting 2019
Sigríður Bjarnadóttir lýsti sig vanhæfa og vék af fundi undir þessum lið. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu skipulagsnefndar um breytingar á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 með fyrirvara á breyttu orðalagi í lið fimm varðandi efnistökutímabil. Fimmta lið skal orða svo „Efnistökutímabil í Eyjafjarðará skal vera milli 1.október og 31.mars ár hvert auk veiðihlés að vori“. Skipulagsfulltrúa er falið að breyta umræddu orðalagi og að því loknu auglýsa skipulagstillögu samkvæmt bókun nefndarinnar.
1.5 - 1911001 - Ósk um breytta landnotkun á Leifstaðabrúnum nr. 8, 9 og 10
Afgreiðsla skipulagsnefndar er samþykkt.
2. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 320 - 2001004F
Fundargerð 320. fundar skipulagsnefndar tekin til afgreiðslu eins og einstakir liðir bera með sér.
2.1 - 1905022 - Umferðaröryggisáætlun Eyjafjarðarsveitar
Sveitarstjórn tekur undir með skipulagsnefnd og þakkar íbúum sem sendu inn ábendingar til nefndarinnar. Að öðru leiti gefur fundargerðin ekki tilefni til ályktana.
3. Landbúnaðar- og atvinnumálanefnd Eyjafjarðarsveitar - 33 - 2002001F
Fundargerð 33. fundar landbúnaðar- og atvinnumálanefndar tekin til afgreiðslu eins og einstakir liðir bera með sér.
3.1 - 1909016 - Kynning á verkefnum Markaðsstofu Norðurlands
Sveitarstjórn samþykkir að taka þátt í verkefninu "Uppbygging á heilsársferðaþjónustu". Þá samþykkir sveitarstjórn að skipa Sigríði Bjarnadóttur og Lindu Margréti Sigurðardóttur sem fulltrúa sveitarstjórnar í vinnuhóp verkefnisins.
3.2 - 1904011 - Kynning á verkefni varðandi merkingu á göngustígum
Gefur ekki tilefni til ályktana.
3.3 - 2001014 - Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar - Styrkumsókn fyrir fræðslu og markaðssetningu í ferðaþjónustu
Gefur ekki tilefni til ályktana.
4. Markaðsstofa Norðurlands - Fundur stjórnar 22.01.2020 - 2002003
Fundargerðin gefur ekki tilefni til ályktana.
5. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 878 - 2002001
Fundargerðin gefur ekki tilefni til ályktana.
6. Almannavarnarnefnd, fundargerð 6. janúar 2020 - 2002006
Fundargerðin gefur ekki tilefni til ályktana.
7. Eyþing - beiðni um viðbótarframlag 2020 - 2002005
Fyrir fundinum lá beiðni frá stjórn Eyþings um viðbótarframlag á árinu 2020 kr. 506.540.-. Sveitarstjórn samþykkir með 4 atkvæðum beiðnina um viðbótarframlag kr. 506.540.- á árinu 2020 og verður útgjöldunum mætt með því að lækka eigið fé. Sigríður Bjarnadóttir, Eiður Jónsson og Sigurður Ingi Friðleifsson sátu hjá.
8. Samstarfssamningur um almannavarnir - 2002007
Fyrir fundinum lágu drög að samstarfsamningi um almannavarnir í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti fyrirliggjandi drög.
9. Skipan í nefndir, ráð og stjórnir 2018 - 2022, skv. samþykktum um stjórn og fundarsköp Eyjafjarðarsveitar. - 1806007
Samþykkt að skipa Jón Tómas Einarsson í menningarmálanefnd í stað Hans Rúnars Snorrasonar sem óskað hafði lausnar.
10. Fráveita Hrafnagilshverfi - 1803008
Fyrir fundinum lá uppfærð kostnaðaráætlun vegna fráveitu í Hrafnagilshverfi. Áætlaður kostnaður í fjárhagsáætlun 2020 var 30 millj. Uppfærð áætlun gerir nú ráð fyrir að kostnaður verði um 40 millj. Sveitarstjórn samþykkir viðauka við fjárhagsáætlun kr. 10 millj. til að mæta fyrirsjáanlegum kostnaðarauka og verður honum mætt með því að lækka eigið fé.
11. Samþykkt um hunda og kattahald í Eyjafjarðarsveit - 1904003
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
12. Heimasíða, markaðs- og kynningarmál - 1810028
Lagt fram til kynningar.