Dagskrá:
Almenn mál
1. 2411001 - Gjaldskrármál
Umræður um gjaldskrármál tengt eldri íbúum í Eyjafjarðarsveit.
2. 2409021 - Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar 2025 og 2026-2028
Bjarki Ármann Oddsson skrifstofu- og fjármálastjóri fer yfir forsendur fjárhagsáætlunar 2025.
Öldungaráð beinir því til sveitarstjórnar að skoða tekjutengda afslætti og tekjuviðmið í samræmi við nágrannasveitarfélög.
3. 2410018 - Önnur mál öldungaráðs
Almenn umræða um málefni eldri íbúa í Eyjafjarðarsveit. Á næsta fundi á að ræða málefni heimaþjónustu og heimahjúkrunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:15