Freyvangsskemmtun fyrsta vetrardag

Gerum okkur glaðan dag á sprúðlandi skemmtun í Freyvangi 26. október kl 21:00.

Miðaverð 4000 kr. Hægt er að nálgast miða í síma 857-5598 eða á freyvangur@gmail.com eða við innganginn. 

Kynnir kvöldsins verður okkar eini sanni Brói, öðru nafni Jón Benónýsson. 

Guðný Ósk syngur Ellýarlög. 

Teddi Óla kemur með uppistand.

Þjóðann Baltastar og Járnbrá þenja raddböndin.

Ronja, Þóranna Ásdís og María Björg leika á þverflautu.

Erla Mist tekur lagið. 

Syðri-Tjarnarbóndinn Hafþór Önundar grýpur með gítarinn.

Svo eru allar líkur á því að fleiri munu stíga á stokk.

Í lokin mun Elín danskennari keyra upp stuðið með dansi.  

Veitingasalan opin - húsið opnar kl 20:00.