Dekurdagar verða dagana 5.-8. október nk. og verða þá m.a. seldar bleikar slaufur til að setja á ljósastaura/póstkassa til styrktar Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis (KAON) líkt og undanfarin ár. Slaufan kostar 5.000 kr. (að lágmarki).
Í fyrra söfnuðust rúmar 800 þúsund kr. í Eyjafjarðarsveit. Upphæðin verður afhent KAON og Dekurdögum í lok október.
Lionsklúbburinn Sif í Eyjafjarðarsveit mun setja slaufurnar upp í lok september og taka þær niður í lok október.
Pantanir þurfa að berast fyrir lok fimmtudagsins 28. september á lionsklubburinnsif@gmail.com eða selmadogg@simnet.is
Eigum nokkrar aukaslaufur fyrir þá sem gleymdu sér ;-)
Ykkar stuðningur skiptir máli.
Með fyrirfram þökkum, Lionsklúbburinn Sif.