Fjölbreytt dagskrá í boði víðsvegar um sveitina. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Komdu og njóttu sumardagsins fyrsta með okkur í Eyjafjarðarsveit.
Íþróttamiðstöð Eyjafjarðarsveitar
Opið frá kl. 10:00-20:00
Lamb Inn Öngulsstöðum
Býður gestum að koma og skoða nýuppgerð herbergi og þiggja kaffi og meðlæti
frá kl. 13:00-16:00.
Holtsel
Opið frá kl. 13:00-18:00
Ljósmyndasýning Örnu Mjallar Guðmundsdóttir og Altarisklæðið frá Miklagarði sýning Höddu (Guðrúnar H.
Bjarnadóttur).
Hadda sýnir verk unnin út frá altarisklæði sem var í Miklagarðskirkju á 16. öld en er nú varveitt í Þjóðminjasafni
Dana.
Jólagarðurinn
Opið frá kl. 14:00-18:00
Bakgarður Tante Grethe og Sveinsbær. Sumar-tombóla, engin núll, allir fá vinning!
Finnastaðir
Opið frá kl. 11:00-13:00
Fræðslustund: Friðar- og heilunarhjólið. Hvað er það? Hvers vegna?
Funaborg á Melgerðismelum
Opið frá kl. 13:30–17:00
Stórglæsilegt kaffihlaðborð að hætti Funamanna, húsdýrasýning og teymt undir yngstu börnunum. Fornbíladeild Bílaklúbbs
Akureyrar rennur í hlað á sínum glæsivögnum og Hjalparsveitin Dalbjörg verður með tæki til sýnis.
Handverksfólk mætir með ýmislegt handverk t.d. G4, Gler ást, myndlistaverk eftir Elísabetu Ásgríms og ef veður leyfir mætir Guðmundur
Örn með eldsmiðjuna sína.
Nýjar og gamlar búvélar á staðnum.
Hestamannafélagið Funi
Álfagallerýið
Opið frá kl. 13:00-17:00
Fjölbreitt úrval af flottu handverki, heitt á könnuni. Allir hjartanlega velkomnir.
Samstarfshópurinn
Smámunasafn Sverris Hermannssonar
Opið frá kl. 11:00–17:00
Safnið er ekki minjasafn, landbúnaðarsafn, verkfærasafn, búsáhaldasafn, naglasafn, járnsmíðasafn eða lyklasafn heldur allt þetta og
meira til. Sýning er í anddyrinu á munum sem unnir hafa verið af vinnuhópi kringum altarisklæðið frá Miklagarði. Sýningin er styrkt af
Menningarráði Eyþings og Menningarmálanefnd. Eyjafjarðarsveitar