Vistvæn hráefni setja sterkan svip á Handverkshátíð 2014 sem haldin verður í 22. sinn í Eyjafajarðarsveit 7.-10 ágúst.
Mikill fjöldi umsókna hefur borist hátíðinni og endurspeglar hún alla jafna það sem hæst ber í handverki hverju sinni; verk,
framleiðsluaðferðir og hráefni.
Sú gróska sem verið hefur í íslensku handverki undanfarin ár er hvergi á undanhaldi og núna virðist sem lífræn og "Fair Trade"
vottuð hráefni ásamt endurvinnslu og vistvænni framleiðslu séu ríkjandi í því fjölbreytta handverki sem lagt hefur verið
fram.
Hátíðin er löngu orðin einn stærsti menningarviðburður á Eyjafjarðarsvæðinu jafnframt því að vera stærsti
vettvangur handverksfólks og hönnuða á landinu með um 100 sýnendur og árlega um 15-20 þúsund heimsóknir.
Umsóknarfrestur Handverkshátíðar 2014 rennur út 1. apríl n.k..
Umsóknareyðublaðið er að finna hér.