Hátíðin er opin í dag mánudag kl. 12-19.
Metaðsókn var á hátíðina um helgina því 15.000 manns hafa sótt hátíðina heim.
Bros á hverju andliti í 20 stiga hita og sól hefur skapað frábæra stemningu á hátíðarsvæðinu.
Hönnunarsamskeppni um nýsköpun í ullarvörum var í tengslum við sýninguna og þá þótti við hæfi að sýna
rúning á ullinni. Birgir Arason rúningsmaður sýnir daglega vélrúning og fékk til liðs við sig konur í sveitinni með
rokkinn og sátu þær við spuna.
Margt er um óvenjulegt hráefni á svæðinu sem hefur vakið eftirtekt. Tískusýningar, fyrirlestrar og námskeið krydda dagskrána
í hvívetna.
Að þessu sinni er staðið að hátíðinni á annan máta en hefur verið því öll félögin í sveitinni hafa lagt
hönd á bagga. Lionsklúbburinn Vitaðsgjafi, þrjú kvenfélög, Ungmennafélagið Samherjar og Hjálparsveitin Dalbjörg
ásamt gríðarlegum fjölda tónlistarfólks og skemmtikrafta, allt fólk sem tengist Eyjafjarðarsveit á einn eða annan hátt.
Handverkskona ársins 2009 var verðlaunuð á kvöldvöku í gær og þann titil hlaut Guðrún Ásgerður Steingrímsdóttir
handverkskona með meiru.
Hátíðin er vel heppnuð í alla staði og í dag mánudag milli 12-19.