Undirbúningur 23. Handverkshátíðar sem fram fer 6.-9. ágúst er hafinn. Hátíðin er löngu orðin einn stærsti menningarviðburður á Eyjafjarðarsvæðinu jafnframt því að vera stærsti vettvangur handverksfólks og hönnuða á landinu. Árlega eru um 100 sýnendur og fær hátíðin um 15-20 þúsund heimsóknir. Í aðdraganda hátíðarinnar undanfarin ár hafa íbúar Eyjafjarðarsveitar lagt sitt af mörkum við að kæta gesti með ýmsum uppákomum s.s. skreyta póstkassa, prjóna klæði á traktor og kýr svo eitthvað sé nefnt. Í ár verða það fuglahræður sem munu fara á stjá og er beðið með eftirvæntingu eftir þeim.
Umsóknir vegna þátttöku á hátíðinni streyma inn þessa dagana og viljum benda á að umsóknarfrestur rennur út 1. apríl. Umsóknareyðublað er að finna hér.