Menningarsjóður Eyjafjarðarsveitar auglýsir eftir umsóknum haustið 2023
Menningarsjóður Eyjafjarðarsveitar auglýsir eftir umsóknum fyrir 15. október vegna úthlutunar úr sjóðnum 1. nóvember næstkomandi.
Tilgangur Menningarsjóðs Eyjafjarðarsveitar er:
Að styrkja menningarverkefni í Eyjafjarðarsveit
Að leggja til framlag til kaupa á listaverkum fyrir Eyjafjarðarsveit
Að styrkja listamenn, félög og fræðimenn og aðra þá sem stjórn sjóðsins ákveður hverju sinni
Að fjármagna þau sérverkefni sem sjóðsstjórn kann að ákveða hverju sinni.
Umsókn er rafræn hér.
Samþykktir sjóðsins má nálgast hér.
26.09.2023
Fréttir