FUNDARBOÐ
652. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 27. mars og hefst kl. 8:00.
652. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, fimmtudaginn 27. mars og hefst kl. 8:00.
Dagskrá
Almenn erindi
1. Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar endurskoðun 2022 - 2210043
Skipulagsnefnd tók drög af skipulagslýsingu til umræðu á 428. fundi sínum og gerði nokkrar athugasemdir. Skipulasglýsingin hefur verið uppfærð miðað við athugasemdir nefnarinnar og liggur því svo breytt tillaga fyrir sveitarstjórn.
Á fundi sínum lagði skipulagsnefnd til við sveitarstjórn að svo breyttri skipulagslýsingu vegna Aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar 2025-2037 verði vísað í kynningarferli samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2. Leifsstaðir land (Leifsstaðabrúnir 25 eða Heiðarhvammur) L152708 - óveruleg breyting á deiliskipulagi - 2502011
Skipulagsnefnd fjallaði um erindið á 428. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við framlagða merkjalýsingu og að hún verði samþykkt á grundvelli reglugerðar um merki fasteigna nr. 160/2024.
3. Aðalskipulag Skagafjarðar - Kynning á tillögu á vinnslustigi (nýtt aðalskipulag) - 2503013
Skipulasgnefnd fjallaði um erindið á 428. fundi sínum og lagði til við sveitarstjórn að ekki sé gerð athugasemd við það.
4. Sýslum. á Norðurl.eystra óskar eftir umsögn - vegna umsóknar um breytingu á gildu rekstrarleyfi S&A eigna á Hótel North Leifsstöðum II - 2503023
Sýslumaður sendir sveitarfélaginu umsagnarbeiðni vegna umsóknar um breytingu á gildu rekstrarleyfi S&A eigna á Hótel North Leifsstöðum II. Um er að ræða fjölgun gesta í alls 52 gesti
5. Sýslum. á Norðurl.eystra óskar eftir umsögn vegna umsóknar Holtsels Hnoss um rekstrarleyfi veitinga í flokki II - 2503012
Sýslumaður sendir sveitarfélaginu umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi veitinga í flokki II frá Holtsels Hnossi.
6. Sýslum. á Norðurl.eystra óskar eftir umsögn vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá Gísla Hallgrímssyni Brúnalaug - 2503016
Sýslumaður sendir sveitarfélaginu umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í fl II í Brúnalaug, um er að ræða neðri hæð í rými 030101, fasteignanúmer 2158456.
7. Félagsmiðstöðin Hyldýpi - 2411010
Sveitarstjórn tekur til umræðu skipulag og starfsemi félagsmiðstöðvarinnar haustið 2025.
8. Reglur fyrir menningarsjóð Eyjafjarðarsveitar - 2503033
Velferðar- og menningarnefnd ræddi reglur fyrir menningarsjóð Eyjafjarðarsveitar á 16. fundi sínum og leggur til við sveitarstjórn að 5.grein úthlutunarreglunnar sé útvíkkuð lítillega svo taka megi tillit til staðsetningar viðburða og starfsemi án þess að binda lögheimili viðburðarhaldara sérstaklega við Eyjafjarðarsveit.
Leggur nefndin til að 5. gr. verði svo hjóðandi:
"Að öllu jafna þurfa umsækjendur að hafa löghemili í Eyjafjarðarsveit eða hafa haft þar lögheimili á síðstliðnum tveimur árum til að geta hlotið greiðslu úr sjóðnum.
Úthlutunarnefnd er heimilt að víkja frá reglu um lögheimilisfesti hafi viðkomandi starfsemi ótvírætt heimili í sveitarfélaginu eða umsókn sé til þess fallin að samfélagið hafi augljósa tengingu eða hag af stuðningi við hana."
9. Fasteignir Eyjafjarðarsveitar - 2502037
Tveir aðilar hafa sóst eftir að leigja túnin að Þormóðsstöðum og ræðir sveitarstjórn nú framhaldið.
10. Ársþing Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra 2025 - 2503031
Ársþing SSNE 2025 verður haldið á Hótel Natur, Svalbarðsstrandarhreppi, 2.-3. apríl næstkomandi. Sveitarstjórn fer yfir dagskrá þingsins sem finna má undir viðburðinum á heimasíðu SSNE.
11. KPMG - Skýrsla um stjórnsýsluskoðun 2024 hjá Eyjafjarðarsveit - 2503017
Lögð fram skýrsla KPMG um stjórnsýsluendursskoðun fyrir árið 2024 hjá Eyjafjarðarsveit.
Fundargerðir til kynningar
12. Skipulagsnefnd Eyjafjarðarsveitar - 428 - 2503007F
Fundargerð 428. fundar skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
13. Öldungaráð - 3 - 2503005F
Fundargerð 3. fundar öldungaráðs Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
14. Velferðar- og menningarnefnd - 16 - 2503006F
Fundargerð 16. fundar velferðar- og menningarnefndar Eyjafjarðarsveitar lögð fram til kynningar.
15. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 964 - 2503007
Fundargerð 964. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
16. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 971 - 2503008
Fundargerð 971. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
17. Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerð 972 - 2503014
Fundargerð 972. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.
18. SSNE - Fundargerð 71. stjórnarfundar - 2503030
Fundargerð 71. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra lögð fram til kynningar.
25.03.2025
Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri.
Finnur Yngvi Kristinsson, sveitarstjóri.