Styrkur til íþrótta- og tómstundastarfs fyrir skólaárið 2020-2021 - Umsóknarfrestur til 15. apríl.
Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020.
*Hægt er að sækja um styrk til og með 15. apríl 2021.
*Miðað er við að íþrótta- og tómstundaiðkunin fari fram á skólaárinu 2020–2021. Athugið að hægt er að koma með kvittanir fyrir íþrótta- og tómstundastarfi sem greitt var fyrir í upphafi skólaárs eða frá hausti 2020.
24.03.2021
Fréttir