Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar auglýsir skipulagslýsingar skv. 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga vegna deiliskipulags fyrir athafnasvæði í landi Stokkahlaða. Svæðið er auðkennt AT4 í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins og mun deiliskipulagið taka til byggingar tveggja húsa sem nýtt verða sem atvinnu- og geymsluhúsnæði.
Lýsingin mun liggja frammi á skrifstofu sveitarfélagsins frá 18. júní 2019 til og með 2. júlí 2019. Lýsingin verður einnig aðgengileg á vef sveitarfélagsins, esveit.is.
19.06.2019
Deiliskipulagsauglýsingar