Lokað verður laugadaginn 31.12.16 og sunnudaginn 1.01.17
Opnum aftur á nýju ári 2. jan kl. 10:00. Ath. að gjaldskráin hefur lítillega breyst þ.e. stakt gjald fyrir fullorðna hefur hækkað í 700 kr. annað helst óbreytt.
Gleðilegt nýtt ár og hlökkum til að sjá ykkur, starfsfólk Íþróttamiðstöðvar
Föstudaginn 30. desember – OPIÐ KL. 13:00-17:00
Laugardaginn 31. desember – LOKAÐ
Venjulegur opnunartími eftir áramót þ.e. þriðju-, föstu- og laugard. kl. 13:00-17:00
Sveitarstjóri
Þann 1. janúar 2017 taka gildi lög nr. 75/2016 um húsnæðisbætur og falla þá úr gildi lög nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Markmið nýju laganna er að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaði.
Af óviðráðanlegum orsökum raskast sorphirða í þessari viku. Vonir standa til að sorphirðu verði lokið fyrir helgi. Gámaþjónusta Norðurlands biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
Sorphirða hefur raskast í vikunnu vegna færðar. Gámaþjónusta Norðurlands biðlar til fólks að passa upp á að heimkeyrslur séu mokaðar og hreinsað frá tunnum svo bílar fyrirtækisins eigi greiða leið að þeim. Í dag miðvikudag verður sendur auka bíll til að klára hreinsun á innri hringnum.
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar samþykkti þann 26. október 2016 að auglýsa skipulags- og matslýsingu fyrir Aðalskipulag Eyjafjarðarsveitar 2018-2030 í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.