Umsóknarfrestur er til 30. september 2012. Nauðsynlegt er að fylla út umsóknareyðublað sem nálgast má á heimasíðunni eða á skrifstofu KEA, Glerárgötu 36, 600 Akureyri.
Þann 16. september er síðasti fasti opnunardagur safnsins á þessu ári, eftir það er hægt að panta fyrir hópa í síma 865-1621 eða á netfangið stekkjar@simnet.is
Ný gjaldskrá fyrir framkvæmdaleyfi og skipulagsvinnu hefur tekið gildi.
Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir breytingu á aðal- og/eða deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem breytingin hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins.
1. göngur verða 1.-2. sept. frá Fiskilæk að Æsustaðatungum. Þaðaðn inn úr og vestan Eyjafjarðarár verða þær 8.-9. sept. Vaðlaheiði og Fiskilækjarfjall ytra verða síðan smöluð 15. sept.
Bæjakeppni Funa verður haldin á Melgerðismelum sunnudaginn 26. ágúst. Skráning verður á staðnum milli kl. 13:00-13:30. Keppni hefst kl. 14:00. Keppt verður í flokki polla, barna, unglinga, ungmenna, karla og kvenna.
Vaxtarsamningur Eyjafjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki. Styrkir verða veittir til skilgreindra verkefna sem líkleg eru til að efla nýsköpun og samkeppnishæfni atvinnulífs á Eyjafjarðarsvæðinu.
Styrkhæf verkefni eru rannsóknar- þróunar- og nýsköpunarverkefni sem markvisst stefna að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Verkefni skulu vera unnin í samstarfi að lágmarki þriggja aðila. Næsti umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst næstkomandi.
Aldrei hafa jafn margir sótt Handverkshátíð og nú í ár. Aðsóknarmet hafa verið slegin bæði í dag, laugardag sem og í gær og búast sýningarhaldarar við áframhaldandi metaðsókn á morgun og mánudaginn.