Dagur íslenskrar náttúru mánudaginn 16. september – Allir velkomnir

Birkifræsöfnun kl. 17:00-19:00 í Reykhúsaskógi við Kristnesspítala – Opið á Hælinu 😊
Tilvalin samvera fjölskyldu og vina.

Ljúffeng grænmetisbaka verður til sölu á Hælinu sem verður opið af þessu tilefni frá kl. 17:00 til kl. 20:00.
Hælið setur um sögu berklanna.

Söfnunarbox verða afhend á planinu við Hælið frá kl. 17:00 og þeim skilað aftur á sama stað fyrir kl. 19:00.
Hlökkum til að sjá sem flesta, Lionsklúbburinn Sif.