102 . fundur umhverfisnefndar Eyjafjardarsveitar haldinn að Syðra Laugalandi, mánudaginn 8. nóvember 2010 og hófst hann kl.
20:30.
Fundinn sátu:
Brynhildur Bjarnadóttir, Hulda M Jónsdóttir, Brynjar Skúlason, Valur ásmundsson, Georg Hollanders og Jónas Vigfússon.
Fundargerð ritaði: Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. 1007009 - Heildar stefnumörkun um sorphirðu og flokkun í sveitarfélaginu
Rætt var um niðurstöður skoðanakönnunar um sorpmál.
Nefndin leggur til að tekið verði upp þriggja íláta flokkunarkerfi á hverju heimili.
Flokkunartunna fyrir endurvinnanlegan úrgang, tæmd á 4 vikna fresti. Lífrænt ílát eða heimajarðgerðartunna, fyrir þá sem
það kjósa, tæmd á tveggja til fjögurra vikna fresti, eftir árstíð. þriðja tunnan verði fyrir óflokkað sorp, tæmd
á fjögurra vikna fresti. Fyrir annan úrgang, eins og timbur, járn, garðaúrgang o.þ.h. verði grenndargámar á svipuðum stöðum
og verið hefur.
Nefndin leggur einnig til að sveitarstjóri geri tillögu að útboðsgögnum í samræmi við ofangreind atriði.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:00