145 . fundur skipulagsnefndar Eyjafjarðarsveitar haldinn að Syðra Laugalandi, þriðjudaginn 28. september 2010 og hófst hann kl.
17:00.
Fundinn sátu:
árni Kristjánsson, Emilía Baldursdóttir, Sigurður Eiríksson, Jón Stefánsson, Sigurður Hólmar Kristjánsson og Jónas
Vigfússon.
Fundargerð ritaði: Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.
á fundinn mættu árni Jón Elíasson frá Landsneti og Sigurjón Páll ísaksson frá Eflu
verkfræðistofu.
Dagskrá:
1. 0902014 - Endurnýjun byggðalínu - Blöndulína 3
árni kynnti fyrirhugaða styrkingu byggðalínu frá Blönduvirkjun að Kárahnjúkavirkjun með nýrri 220 kV háspennulínu.
Fyrirspurnir komu fram um samanburð á jarðstreng og loftlínu þvert yfir Eyjafjörð.
Landsnet telur jarðstrengslausn ekki tæknilega eða kostnaðarlega fýsilega og hún sé einungis skoðuð við einstæðar
umhverfisaðstæður og þétta íbúðabyggð.
Að lokum var farið í vettvangsskoðun.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00