Dagskrá:
1. Háaborg 2 - L174046 - F2219399 - Umsókn um breytingu á vinnustofu í íbúðarhús - 2502009
Fyrir fundinum liggur erindi frá eiganda Háuborgar 2, þar sem sótt er um að breyta skráningu/notkun á vinnustofu (tómstundaaðstöðu samkv. fasteignaskrá) í íbúð.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að hafna erindinu á grundvelli skilmála aðalskipulags Eyjafjarðarsveitar sem kveður á um þrjár byggingalóðir samtals fyrir íbúða- eða frístundahús á hverri bújörð án deiliskipulags.
2. Athafnasvæði á Bakkaflöt - nýtt deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi - 2310005
Kynning deiliskipulagstillögu á vinnslustigi og breytingar á aðalskipulagi fyrir athafnasvæði á Bakkaflöt lauk 3. mars sl. og bárust níu erindi á kynningartímabliinu. Nefndin fjallar um innkomin erindi.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að hafa hliðsjón af innkomnum erindum við uppfærslu skipulagstillögunar og samþykkja að auglýsa samkv. 31.gr. og 1. mgr 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010
3. Brúnagerði 15 L208303 - óveruleg breyting á deiliskipulagi v.hreinsivirkis - 2503041
Fyrir fundinum liggur erindi fyrir hönd lóðarhafa að Brúnagerði 15 L208303, þar sem eftir því er leitað að heimilað verði að sett sé niður hreinsivirki innan lóðarinnar þrátt fyrir að skv. gildandi deiliskipulagi sé ætlað að tengja lóðina við sameiginlegt hreinsivirki fyrir skipulagssvæðið.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins og óskar eftir við skipulagsfulltrúa að kanna nánar aðstæður á svæðinu áður en tekin er afstaða til beiðninnar.
4. Hólmatröð 12 L235825 - stöðuleyfi fyrir dúkaskemmu - 2503048
Sótt er um stöðuleyfi vegna 8*12m dúkaskemmu við Hólmatröð 12, sem ætluð er til geymslu á byggingarefni og búnaði á meðan framkvæmdir við Hólmatröð 3 og 12 standa yfir.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði stöðuleyfi fyrir dúkaskemmu. Stöðuleyfi gildir í eitt ár. Þá verði jafnframt skilyrt í stöðuleyfinu að sveitarfélagið geti afturkallað leyfið ef aðstæður kalla á að þörf sé fyrir sveitarfélagið að fá aðgang að umræddu landsvæði.
5. Byttunes L228844 - Umsókn um framkvæmdaleyfi til landmótunar á Byttunesi - 2503024
Á síðasta fundi ákvað nefndin að óska eftir frekari upplýsingum um framkvæmdina svo sem hver tilgangur landmótunarinnar er og grófa lýsingu á framkvæmdinni og landhæð að lokinni landmótun. Umrædd gögn hafa borist og heldur nú nefndin áfram umræðu um erindið.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt en að í framkvæmdaleyfi verði skilyrt að landhæð mótunnar fari ekki yfir veghæðir enda liggja að svo stöddu ekki fyrir hönnunargögn varðandi fyrirkomulag svæðisins.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30