135 . fundur íþrótta- og tómstundanefndar Eyjafjarðarsveitar haldinn að Syðra Laugalandi, fimmtudaginn 6. maí 2010 og hófst hann kl.
20:00.
Fundinn sátu:
Elmar Sigurgeirsson, Hafdís Hrönn Pétursdóttir, Nanna Jónsdóttir, þórir Níelsson og Jónas Vigfússon.
Fundargerð ritaði: Nanna Jónsdóttir, ritari.
Dagskrá:
1. 0912010 - Kvennahlaup íSí 2010
Kvennahlaupið 19. júní skipulagt og gengið frá bolapöntun. Hlaupnar verða 3 vegalengdir, 2,5 km, 5 km og 10 km. Boðið verður upp ávexti og
grænmeti að hlaupi loknu og hjúkrunarfræðingur mælir blóðþrýsting og blóðsykur. Kassaklifur verður fyrir börnin og teymt
undir þeim.
2. 1004018 - Hestamannafélagið Funi sækir um styrk vegna barna- og unglingaráðs 2010
Nefndarmenn samþykktu að
veita Hestamannafélaginu Funa styrk að upphæð kr. 200.000.
3. 1005002 - Sveinborg K. Daníelsdóttir sækir um styrk vegna keppnisferðar á vegum UMSE til Gautaborgar
Samþykkt
að veita Sveinborgu Kötlu Daníelsdóttur styrk að upphæð kr. 20.000.
4. 1005003 - Guðmundur S Daníelsson sækir um styrk vegna keppnisferðar á vegum UMSE til Gautaborgar.
Samþykkt að
veita Guðmundi Smára Daníelssyni styrk að upphæð kr. 20.000.
5. 1005004 - Guðfinna Rós Sigurbrandsdóttir sækir um styrk vegna keppnisferðar til Gautaborgar
Samþykkt að veita
Guðfinnu Rós Sigurbrandsdóttur styrk að upphæð kr. 20.000.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:00