15. fundur Landbúnaðar- og atvinnumálanefndar Eyjafjarðarsveitar
haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, mánudaginn 2. desember 2013 og hófst hann kl. 20:00.
Fundinn sátu:
Elmar Sigurgeirsson formaður, Aðalsteinn Hallgrímsson aðalmaður, Þórir Níelsson aðalmaður, Jónas Vigfússon sveitarstjóri og Stefán Árnason embættismaður.
Fundargerð ritaði: Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.
Arna og Bjarkey boðuðu forföll.
Dagskrá:
1. 1311036 - Landgræðsla ríkisins - Styrkbeiðni v/verk. "Bændur græða landið" 2013
Styrkbeiðni kr. 10 þús. samþykkt.
2. 1311035 - Fjárhagsáætlun landbúnaðar- og atvinnumálanefndar 2014
Unnin var fjárhagsáætlun fyrir árið 2014. Framlag til ferðamála er hækkað í 605 þús. kr. en áhugi er á að merkja ferðaþjónustu í sveitarfélaginu betur. Einnig verður unnið áfram við merkingu gönguleiða,
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 20:50