15 . fundur Framkvæmdaráðs haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, mánudaginn 30. janúar 2012 og hófst hann kl.
17:00.
Fundinn sátu:
Elmar Sigurgeirsson, Einar Gíslason, Jón Stefánsson og Einar Tryggvi Thorlacius.
Fundargerð ritaði: Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.
Farið var í vettvangsskoðun í Freyvang og íbúð á 3. hæð í Skólatröð 11.
Dagskrá:
1. 1201012 - Anddyri mötuneytis
ákveðið að setja upp snaga í anddyri mötuneytis.
2. 1201010 - Freyvangur
Snyrtingu fyrir fatlaða er lokið og jafnframt var lagfærð búningsaðstaða í norðurenda. Eftir er að ganga frá fatahengi.
ákveðið að setja dyragat á milli fundarherbergis og eldhúss. Framkvæmdin á að rúmast innan áætlunar.
3. 1201011 - Skólatröð 1
Farið var yfir tilboð í glugga á norðurvegg skóla. ákveðið að ganga til samninga við Glugga ehf. á grundvelli tilboðs.
4. 1201009 - Skólatröð 11
Borist hefur tilboð í glugga á norðurhlið og í svalahurðir. ákveðið að loka dyraopi við svalir, en taka tilboði í aðra
glugga. Beðið er eftir tilboði í ísetningu glugganna.
þá voru skoðuð tilboð í eldhúsinnréttingu í eldhús á 3. hæð og ákveðið að semja við öl um
smíði innréttingar.
ákveðið að skipta um ofna í stofu og svefnherbergjum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00