7 . fundur fjallskilanefnd Eyjafjarðarsveitar haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, mánudaginn 22. ágúst 2011 og hófst hann
kl. 20:00.
Fundinn sátu:
Birgir H. Arason, Orri óttarsson, Guðmundur Jón Guðmundsson og Jónas Vigfússon.
Fundargerð ritaði: Jónas Vigfússon, sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. 1104011 - Fjallskil og fjárgöngur 2011
Farið var yfir gangnaseðla og
raðað niður gangnadagsverkum. Heildarfjárfjöldi sem lagt er á til fjallskila eru 5072 kindur og heildarfjöldi dagsverka 397.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 22:30