127. fundur félagsmálanefndar Eyjafjarðarsveitar haldinn að Syðra Laugalandi, miðvikudaginn 9. september 2009 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Hulda M Jónsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir, Hugrún Hjörleifsdóttir, Elín Margrét
Stefánsdóttir, Jónas Vigfússon,
Fundargerð ritaði: Anna Guðmundsdóttir , ritari
Dagskrá:
1. 0907010 - Skólatröð 6 - úthlutun félagslegrar leiguíbúðar
Sveitarstjóra falið að kanna hvort hægt sé að auglýsa íbúðina sem almenna leiguíbúð þar enginn sem sótti um
hana féll undir tekjuviðmið fyrir félagslegar leiguíbúðir.
2. 0902001 - Umsókn um leyfi til starfa sem dagmóðir
Samþykkt að veita áframhaldandi leyfi til bráðabirgða til 6 mánaða þegar búið er að kanna hvort úrbætur hafi verið
gerðar á þeim atriðum sem athugasemdir voru gerðar við. Forsenda fyrir að fá leyfi til frambúðar er einnig að viðkomandi ljúki
námskeiði ætlað dagmæðrum. Búið er að taka út húsnæði og útisvæði og starfsmaður skóladeildar
Akureyrar gerði fyrstu úttekt á hæfi dagmóðurinnar. óskað er eftir því að skóladeild Akureyrar verði falið
áframhaldandi eftirlit, bæði með nýrri dagmóður og þeirri sem fyrir er starfandi. Til að gæta hagkvæmni verði óskað eftir
því að eftirlit á þessa tvo staði fari fram í sömu ferðinni.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00