138 . fundur félagsmálanefndar Eyjafjarðarsveitar haldinn í fundarstofu 2, Skólatröð 9, þriðjudaginn 22.
nóvember 2011 og hófst hann kl. 16:30.
Fundinn sátu:
Hugrún Hjörleifsdóttir, Hafdís Hrönn Pétursdóttir, Snæfríð Egilson, Bryndís þórhallsdóttir og Bjarni
Kristjánsson.
Fundargerð ritaði: Hugrún Hjörleifsdóttir, formaður.
Dagskrá:
1. 1111018 - Fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2012
Settur var inn nýr liður (0240) í fjárhagsáætlun fyrir árið 2012 þar sem félagsmálanefnd leggur til að gerð
verði könnun á högum íbúa 67 ára og eldri í Eyjafjarðarsveit og skoðuð afstaða þeirra til þeirrar þjónustu
sem veitt er í sveitafélaginu. í tengslum við lið 0285 í fjárhagsáætlun þá leggur nefndin til að leiguverð
íbúða verði endurskoðað í þeim tilgangi að íbúðirnar standi undir sér.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45