Skógarkerfill
Eins og áður hefur komið fram mun umhverfisnefnd standa fyrir tilraunaverkefni um eyðingu á kerfli í sumar. Nefndin vinnur nú að skipulagningu verksins og
safnar m.a. saman upplýsingum um hvar kerfillinn er að skjóta rótum.
þeir landeigendur sem hafa orðið varir við kerfilinn á sinni landareign eru beðnir um að láta vita á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar. (s. 463-1335
netfang: bjarni@esveit.is)
Mikilvægt er að landeigendur láti vita svo hægt sé að skipuleggja verkið og ná sem bestum árangri.
Umhverfisnefnd stefnir á að halda fund með landeigendum í mars/apríl þar sem áætlun um framkvæmdir verður m.a. kynnt. Nánar
auglýst síðar.
Umhverfisnefnd
Athugið
Folalda og ungfolasýning Náttfara fer fram á Melgerðismelum ásamt vígslu reiðskemmu laugardaginn 23. feb kl. 13.30. Ungfolar fæddir 2005 og 2006 eru
gjaldgengir. Lokafrestur skráningar er þriðjudagskvöldið 19. febrúar hjá
Jóni Elvari s: 892 1197 netfang
hrafnagil@hrafnagil.is og hjá
Rósberg s: 695 7218 netfang
midgerdi@gmail.com
þið munið hann Jörund
Vegna mikillar eftirspurnar er forsala hafin á sýninguna þið munið hann Jörund hjá Freyvangsleikhúsinu. Forsala og nánari upplýsingar
á heimasíðu félagsins,
www.freyvangur.net og í síma 857-5598 milli kl.16.00 – 18.00 virka
daga.
Fyrstu sýningar eru sem hér segir:
Frumsýning föstudaginn 22. febrúar kl.20:30 – UPPSELT
2. sýning sunnudaginn 24. febrúar kl. 20:30 – Laus sæti vegna forfalla!
3. sýning föstudaginn 29. mars kl. 20:30
4. sýning sunnudaginn 2. mars kl. 20:30
5. sýning föstudaginn 7. mars kl. 19:00 – UPPSELT
6. sýning laugardaginn 8. mars kl. 20:30
7. sýning föstudaginn 14. mars kl. 20:30 – örfá sæti laus
8. sýning laugardaginn 15. mars kl. 16:00 – Aukasýning UPPSELT
9. sýning laugardaginn 15. mars kl. 20:30
Freyvangsleikhúsið
Ferðaþjónustan öngulsstöðum III býður upp á leikhúsmatseðil fyrir sýningar.
Síminn hjá Ferðaþjónustunni er 463-1380
Aldan Voröld
ágætu félagskonur. Aðalfundur félagsins verður haldinn laugardaginn 23. febrúar n. k. kl. 15:00 í Húsmæðraskólanum. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Nýjar félagskonur velkomnar. Hittumst hressar.
Stjórnin.
Aðalfundur umf. Samherja.
Aðalfundurinn verður haldinn þriðjudaginn 26. febrúar kl. 20. 30.
Venjuleg aðalfundarstörf, t.d lagabreytingar. Fundarstaður auglýstur síðar.
Stjórnin.
Deildarfundur Austur-Eyjafjarðardeildar KEA
Verður haldinn þriðjudaginn 19. feb. kl. 20:00 á öngulsstöðum
á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum um störf deilda félagsins
Deildarstjórn
Vissir þú?
Með umf. Samherja æfa 60-70 börn og ungmenni.
Umf. Samherjar stendur fyrir 11 æfingatímum í viku hverri, skólaárið 2007- 2008.
öflug íþróttaiðkun er ein af betri forvörnum fyrir börn og ungmenni.
Tekið er eftir því annars staðar á landinu hversu öflug íþróttastarfsemi er hér í héraðinu.
Félagar eru í kringum 400 manns.
Bestu kveðju, stjórnin.
Athugið
Vegna flutninga, vantar gott heimili fyrir 2 ára tík sem er vel upp alin og góð.
Upplýsingar gefa Guðný 564-4306, Vilborg 846-1641
Veðurlýsing
Eins og margir vita skrifa ég veðurlýsingu niður á hverjum morgni. Ef þú hefur áhuga get ég sent þér lýsinguna í
tölvupósti og mun ég þá senda hana einu sinni í viku eða oftar ef vindur fer yfir 27 m/sek. Sendu mér netfangið þitt ef þú
vilt vera með.
óli öxnafelli.
oxnafell@nett.is