Auglýsingablað 1281. tbl. 16. árg. þriðjudaginn 18. mars 2025.

Iðunnarkvöld – miðvikudaginn 19. mars kl. 20:00 í fundarherberginu í Laugarborg.
Allar konur velkomnar sem leikur forvitni á að fá að vita meira um okkar frábæra starf og félagsskap.
Hlökkum til að sjá sem flestar.
Kvenfélagið Iðunn.

Aðalfundur Hjálparinnar í Sólgarði
Kvenfélagið Hjálpin heldur aðalfund sinn í Sólgarði laugardaginn 22. mars kl. 11:00-13:00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Nýjar konur velkomnar.
Stjórnin.

Ferðanefnd FEBE auglýsir vorferð á sunnanverða Vestfirði, þar sem gist verður á Patreksfirði. Ferðin verður farin 27. - 30. maí og kostar 125 þúsund. Innifalið er gisting í tveggja manna herbergjum, rúta, fullt fæði og aðgangseyrir þar sem það á við. Skráningu lýkur 25. mars og staðfestingargjald upp á 25 þúsund kr. þarf að greiða á sama tíma. Óski einhver eftir að vera í eins manns herbergi kostar það aukalega. Reikningsnúmer: 0370-26-042168, kennitala: 121152-5689. Við skráningu taka Leifur í síma 894-8677, Sveinbjörg í síma 846-3222 og Páll í síma 661-7627.

Aðalfundur Búnaðarfélags Eyjafjarðarsveitar
Aðalfundur Búnaðarfélags Eyjafjarðarsveitar verður haldinn á Ytra-Gili þriðjudaginn 25. mars kl. 11:00.
Dagskrá fundarins: Almenn aðalfundarstörf.
Erindi: Guðmundur frá Eco garden mætir og fjallar um ýmislegt tengt stæðugerð og fleira.
Stjórnin.

Aðalsafnaðarfundur Kaupangssóknar verður haldinn miðvikudaginn 26. mars nk. klukkan 19:30 í Kaupangskirkju.
Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sóknarnefndin.

Hælið setur um sögu berklanna vill ráða ungling til aðstoðar á kaffihúsinu og sýningunni í sumar. Opnunartími HÆLISINS er júní, júlí og ágúst milli kl. 13:00-17:00 alla daga vikunnar. Rík þjónustulund, glaðlegt viðmót og vinnusemi skilyrði og aldurstakmark 14 ára.
Greitt er skv. kjarasamningum Einingar-Iðju.
Áhugasamir sendi umsókn á info@haelid.is.

Land míns föður í Freyvangsleikhúsinu
Land míns föður er söngleikur um stríðsárin í Reykjavík, hernámið og það sem því fylgdi. Hvaða áhrif hafði hernámið á íslendinga, einstaklinga og þjóðlífið í heild? Athyglin beinist að unga parinu Báru og Sæla og fólkinu í kringum þau. Þau eru að hefja búskap þegar stríðið skellur á. Sæli kýs að fara frekar á sjóinn en í Bretavinnuna, en Bára og móðir hennar opna þvottahús sem þjónar hernum. Bára kynnist breskum liðsforingja og í fjarveru Sæla fella þau hugi saman. Ýmislegt gengur á áður en yfir lýkur og hlökkum við til að ferðast með ykkur aftur í tímann.
Miðasala er í fullum gangi á tix.is og í síma 857-5598.

Sánuvagn Mæju er staðsettur hjá Siglingaklúbbnum Nökkva á Akureyri um þessar mundir. Þú ættir að prófa að koma í gusu; 3x15 mínútur í góðum hita með ljúfri tónlist og kæling á milli úti í vorkulinu með hressingu. Sumir dýfa sér í sjóinn en það er engin skylda! Ákaflega endurnærandi og skemmtileg blanda af hita og kulda. Bókið með skilaboðum á facebooksíðu Sánuvagns Mæju.