Auglýsingablað 1252. tbl. 16. árg. þriðjudaginn 16. júlí 2024.
![](/static/files/logo_esveit.png)
Eyjafjarðarsveit
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar verður lokuð frá 22. júlí til og með 2. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks. Þeim sem þurfa nauðsynlega að ná sambandi við sveitarfélagið er bent á vaktsíma Eyjafjarðarsveitar 463-0615.
Næsta auglýsingablað eftir sumarlokun er áætlað þriðjudaginn 6. ágúst.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 10:00 á þriðjudögum á esveit@esveit.is
Sjá nánari upplýsingar á https://www.esveit.is/is/mannlif/menning-og-listir/auglysingabladid
![](/static/files/haelid.nytt.png)
Hælistónar
28. júlí: Kristjana Arngríms og Kristján Hjartarson
10. ágúst: Bóndi og kerling/Bobbi og Sigga
Tónleikarnir hefjast kl. 15:00 í boði Hollvina Hælisins!
Velkomin!
![](/static/files/Auglysingar/1a_eisntaka_vidburdir/2024/eyjafjardara-af-sidunni-eyjafjardara.is.jpg)
Kæru bændur og landeigendur
Bændadagar sem eftir eru í Eyjafjarðará sumarið 2024 eru sem hér segir: 6. ágúst og 3. september nk. Bændum er þá heimilt að veiða fyrir sínu landi enda sé þá öllum veiðireglum árinnar fylgt.
Með veiðikveðju, stjórnin.
Eyjafjarðará, mynd af síðunni eyjafjardara.is
![](/static/files/passamynd-af-kallinum-uti.jpg)
Gjaldskrá 2024
Minjasafnið, Nonnahús, Davíðshús, Leikfangahúsið, Iðnaðarsafnið, gamli bærinn Laufás og Smámunasafnið.
Aðgangsmiðinn gildir allt árið á öll söfnin:
Aðgangseyrir (18+) 2.500 kr.
Lífeyrisþegar (67+) 1.700 kr.
Hópar 10+ 2.125 kr.
Yngri en 18 ára Ókeypis