Auglýsingablaðið

1247. TBL 11. júní 2024

Auglýsingablað 1247. tbl. 16. árg. þriðjudaginn 11. júní 2024.

 


Sveitarstjórnarfundur
635. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 13. júní og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir að ráða deildarstjóra.

  • Leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða 100% ótímabundna stöður á deild með yngri börnum. Æskileg starfsbyrjun er ágúst 2024.
  • 36 stunda vinnuvika og 10 tíma undirbúningur á viku.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 81 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára.

Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.

Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem stefnt er á að opna árið 2025 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Hæfni samkvæmt reglugerð 1355/2022 um almenna og sérhæfða hæfni kennara og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
  • Færni í að vinna í stjórnendateymi.
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði.

Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.

Umsóknarfrestur er til 15.júní 2024

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is

 


Lausar stöður í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit.
Hrafnagilsskóli er grunnskóli í dreifbýli um 12 km fyrir innan Akureyri og eru um 180 nemendur í skólanum. Skólinn hefur skapað sér afar gott orðspor í gegnum tíðina og samanstendur af frábærum mannauði. Heimasíða Hrafnagilsskóla er www.krummi.is.

Skólaliði og starfsmaður í frístund

Inn í öflugan og skemmtilegan starfsmannahóp Hrafnagilsskóla vantar skólaliða og starfsmann í frístund næsta skólaár. Óskum eftir að ráða í 75 - 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2024.

Leitað er eftir starfsmanni sem:

➢ Sýnir metnað í starfi.
➢ Er fær og lipur í samskiptum.
➢ Sýnir sjálfstæði í vinnubrögðum.
➢ Er lausnamiðaður.

Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2024.

Nánari upplýsingar veitir aðstoðarskólastjóri Björk Sigurðardóttir í símum 464-8100 og 863-1415. Sótt er um stöðuna með því að senda umsókn og ferilskrá með netpósti á netfangið bjork@krummi.is.

 


Sleppingar fyrir sauðfé verða þann 15. júní í ár.
Fjallskilanefnd hefur ákveðið að seinka sleppingum sauðfjár um nokkra daga vegna aðstæðna svo sem snjóalaga og gróðurs. Þá eru fjáreigendur beðnir um að taka mið af aðstæðum á sinni afrétt eftir þann dag.
Beitartímabil vegna naugripa hefst 20. júní og lýkur 1. október. Beitartímabil hrossa hefst 20. júní og lýkur 10. janúar á næsta ári.

Göngur verða eftirfarandi:

  1. Göngur fara fram 5.-8. september.
  2. Göngur fara fram 20.-22. september.

Hrossasmölun verður 4. október og stóðréttir 5. október.

 


Tilkynning um búfjárbeit
Fjallskilanefnd bendir á að "Nýti umráðamaður ekki að fullu land það sem hann hefur fyrir eigin búfé er honum heimilt að leyfa öðrum afnot af því að því marki sem beitarþol leyfir. Ef um óskipt land er að ræða verða sameigendur einnig að veita leyfi fyrir slíkri heimild. Umráðamanni lands ber að tilkynna til sveitarstjórnar hverjum hann heimilar beit og fyrir hvaða fjölda búfjár, sbr. 8. gr. laga nr. 6/1986, sbr. einnig ákvæði í 7. gr. fjallskilasamþykktar fyrir sveitarfélög við Eyjafjörð nr. 173/2011."

 


Katta- og hundahald
Nú er varptíminn í algleymingi og vert að minna á 15. gr. samþykktar um hunda og kattahald, en þar segir: „Eigendum og forráðamönnum katta ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma, t.d. með því að takmarka útiveru þeirra og eftir atvikum hengja á þá bjöllu.”

Vinsamleg ábending til hundaeigenda sem ganga meðfram Eyjafjarðará, á meðan á varptíma stendur, að takmarka lausagöngu hunda sinna þar yfir þennan tíma.

Í samþykktinni kemur einnig fram, í 9. gr., að ef dýrin valda nágrönnum eða öðrum ónæði, óþrifum eða tjóni þá er eiganda eða umráðamanni skylt að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt. Dýrin skulu bera ól með tengiliðaupplýsingum og er eiganda eða umráðamanni ávallt skylt að fjarlægja saur eftir dýr sitt.

Sé ónæði af völdum katta og/eða hunda má hafa samband í vaktsíma 463-0615.
Sveitarstjóri.

 


Viltu sleppa við að slá garðinn í sumar?
Ég tek að mér garðslátt frá og með 26. júní, auk þess sem ég get slegið dagana 30. maí- 2. júní. Ég gef fast verð í verkið eftir umfangi lóðar.
Áhugasamir geta haft samband í gegnum facebook eða í síma 897-3382.
Róbert Orri Finnsson.

 

Ertu orðinn leiður á að slá?
Ég er með lausnina á því. Til sölu Husqvarna slátturróbot.
Upplýsingar í síma 898-8347.

 


Nýbakað flatbrauð
Konur úr Kvenfélaginu Iðunni koma saman í Laugarborg sunnudaginn 23. júní til að baka flatbrauð.

Hver pakki inniheldur tvær kökur og kostar 1000 kr.
Flatbrauðið er sykur- og mjólkurlaust.

Hægt verður að panta flatbrauð til hádegis laugardaginn 22. júní.

Pantanir er hægt að leggja inn með því að fylla út eyðublað á slóðinni https://bit.ly/Flatbraud. Líka er hægt að panta hjá formanni félagsins, Jóhönnu Báru Þórisdóttur í síma 862-4488 á milli kl. 18:00 og 20:00.

Pantanir verða afhentar í Laugarborg að bakstri loknum milli kl. 16:00-17:00. Greitt við afhendingu annað hvort með því að leggja inn á reikning félagsins eða að greiða með peningum. Enginn posi á staðnum.

Getum við bætt efni síðunnar?