Auglýsingablaðið

1245. TBL 28. maí 2024

Auglýsingablað 1245. tbl. 16. árg. þriðjudaginn 28. maí 2024.

 


Sveitarstjórnarfundur

634. fundur sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar verður haldinn í fundarherbergi sveitarstjórnar, Skólatröð 9, fimmtudaginn 30. maí og hefst hann kl. 8:00. Dagskrá fundarins verður kynnt á upplýsingatöflu í anddyri skrifstofunnar og á heimasíðu sveitarfélagsins.

 


Drög að nýrri Menntastefnu Eyjafjarðarsveitar kynningarfundur á netinu miðvikudaginn 5. júní klukkan 20:00

Kæru íbúar, kynningarfundur vegna menntastefnu Eyjafjarðsveitar verður haldinn á Teams miðvikudaginn 5. júní klukkan 20:00. Hlekk á fundinn má finna undir viðburðinum á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar auk hlekkjar á drög menntastefnunnar.
Á fundinum verða drög af nýrri menntastefnu kynnt fyrir þeim sem mæta og verður íbúum og starfsfólki í kjölfarið gefið færi á að koma með athugasemdir við drögin.

Allir hvattir til að mæta á Teams.

 


Girðingar og sleppingar

Áhersla er lögð á að fjallsgirðingar skulu fjár- og gripheldar fyrir 10. júní og séu það til 10. janúar ár hvert sbr. 5. gr. sömu samþykktar.
Mælst er til þess að fullorðnum hrútum sé ekki sleppt á afrétt.

 


Sleppingar fyrir sauðfé verða þann 15. júní í ár.

Fjallskilanefnd hefur ákveðið að seinka sleppingum sauðfjár um nokkra daga vegna aðstæðna svo sem snjóalaga og gróðurs. Þá eru fjáreigendur beðnir um að taka mið af aðstæðum á sinni afrétt eftir þann dag.

Beitartímabil vegna naugripa hefst 20. júní og lýkur 1. október. Beitartímabil hrossa hefst 20. júní og lýkur 10. janúar á næsta ári.

Göngur verða eftirfarandi:
1. Göngur fara fram 5.-8. september.
2. Göngur fara fram 20.-22. september.

Hrossasmölun verður 4. október og stóðréttir 5. október.

 


Tilkynning um búfjárbeit

Fjallskilanefnd bendir á að "Nýti umráðamaður ekki að fullu land það sem hann hefur fyrir eigin búfé er honum heimilt að leyfa öðrum afnot af því að því marki sem beitarþol leyfir. Ef um óskipt land er að ræða verða sameigendur einnig að veita leyfi fyrir slíkri heimild. Umráðamanni lands ber að tilkynna til sveitarstjórnar hverjum hann heimilar beit og fyrir hvaða fjölda búfjár, sbr. 8. gr. laga nr. 6/1986, sbr. einnig ákvæði í 7. gr. fjallskilasamþykktar fyrir sveitarfélög við Eyjafjörð nr. 173/2011."

 


Sumarlokun bókasafnsins

Þá er sumarið vonandi á næsta leiti og því fylgir að almenningsbókasafnið lokar þar til í byrjun september.
Föstudagurinn 31. maí er síðasti opnunardagur á þessu vori.
Þá er opið frá kl. 14:00-16:00.
Gott væri að minna skólabörnin á að skila því sem þau eru með af safninu.
Ég vil þakka öllum þeim sem nýttu sér safnið í vetur. Vonandi verða enn fleiri næsta vetur sem koma í heimsókn og nota sér það sem hér er í boði.
Með sumarkveðju, bókavörður.



Lkl. Sif - aðalfundur miðvikudaginn 29. maí kl. 19:30 í Félagsborg

Venjulega aðalfundarstörf og Hallþóru veitingar (systir Hnallþóru).
Fróðleiksfúsum og áhugadrifnum Valkyrjum er velkomið að koma og kynnast okkur Sifjarkonum og starfinu, sjón er sögu ríkari!
Stjórnin.



Íþróttamiðstöð lokuð til og með 31. maí

Íþróttamiðstöðin er lokuð til og með föstudagsins 31. maí vegna námskeiða starfsfólks og viðhalds.
Opnum skv. sumaropnunartíma laugardaginn 1. júní.
Hlökkum til sumarsins og bjóðum ykkur velkomin til okkar.



Katta- og hundahald

Nú er varptíminn í algleymingi og vert að minna á 15. gr. samþykktar um hunda og kattahald, en þar segir: „Eigendum og forráðamönnum katta ber að taka tillit til fuglalífs á varptíma, t.d. með því að takmarka útiveru þeirra og eftir atvikum hengja á þá bjöllu.”

Vinsamleg ábending til hundaeigenda sem ganga meðfram Eyjafjarðará, á meðan á varptíma stendur, að takmarka lausagöngu hunda sinna þar yfir þennan tíma.

Í samþykktinni kemur einnig fram, í 9. gr., að ef dýrin valda nágrönnum eða öðrum ónæði, óþrifum eða tjóni þá er eiganda eða umráðamanni skylt að leita leiða til að koma í veg fyrir slíkt. Dýrin skulu bera ól með tengiliðaupplýsingum og er eiganda eða umráðamanni ávallt skylt að fjarlægja saur eftir dýr sitt.

Sé ónæði af völdum katta og/eða hunda má hafa samband í vaktsíma 463-0615.
Sveitarstjóri.



Forsetakosningar 1. júní 2024

Kjörstaður í Eyjafjarðarsveit vegna forsetakosninganna 1. júní 2024 verður í Hrafnagilsskóla. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.
Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja með mynd eða á annan fullnægjandi hátt. Bent er á að ef nota á stafræn ökuskírteini þá þarf að huga að uppfærslu þeirra áður en komið er á kjörstað.

Þeim sem eiga erfitt með gang er heimilt að aka út að skóla.

Nánari upplýsingar um fyrirkomulag á kjörstað má finna á https://island.is/hvernig-er-kosid 

Upplýsingar um kosningu utan kjörfundar má finna á https://island.is/v/forsetakosningar-2024/kosning-utan-kjorfundar 

Kjörskrá er aðgengileg á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar auk þess sem finna má upplýsingar um sinn kosningarstað á https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/forsetakosningar/ 

Á kjördegi hefur kjörstjórn aðsetur í Hrafnagilsskóla, sími 464-8100 eða 894-1372.

Kjörstjórn í Eyjafjarðarsveit 11. maí 2024: Einar Jóhannsson, Sigríður Hrefna Pálsdóttir og Þór Hauksson Reykdal.



Viltu sleppa við að slá garðinn í sumar?

Ég tek að mér garðslátt frá og með 26. júní, auk þess sem ég get slegið dagana 30. maí- 2. júní.
Ég gef fast verð í verkið eftir umfangi lóðar.
Áhugasamir geta haft samband í gegnum facebook eða í síma 897-3382.
Róbert Orri Finnsson.

 


Leikskólinn Krummakot auglýsir eftir að ráða deildarstjóra

● Leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi. Um er að ræða 100% ótímabundna stöður á deild með yngri börnum. Æskileg starfsbyrjun er ágúst 2024.
● 36 stunda vinnuvika og 10 tíma undirbúningur á viku.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi, aðeins tíu kílómetra sunnan Akureyrar. Á Krummakoti eru 81 dásamleg börn sem eru á aldrinum 1 - 6 ára.
Svæðið í kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á jákvæðan aga, söguaðferð og útikennslu. Starfsmannahópurinn á Krummakoti er öflugur og stendur þétt saman. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.

Unnið er að byggingu nýs húsnæðis fyrir leikskólann sem stefnt er á að opna árið 2025 og gefst því færi á að taka þátt í spennandi tímum og mótun starfsins í nýju húsnæði.

Menntunar- og hæfniskröfur
● Hæfni samkvæmt reglugerð 1355/2022 um almenna og sérhæfða hæfni kennara og leyfi til að nota starfsheitið kennari.
● Færni í að vinna í stjórnendateymi.
● Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
● Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.

Umsóknarfrestur er til 15. júní 2024
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur. Öllum umsóknum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir Erna Káradóttir leikskólastjóri í síma 464-8120, netfang erna@krummi.is 

Getum við bætt efni síðunnar?