Auglýsingablað 1208. tbl. 15. árg. 13. september 2023.
![](/static/files/Auglysingar/1a_eisntaka_vidburdir/2023/febe-gonguferdir-2023.jpg)
Frá Félagi eldri borgara í Eyjafjarðarsveit
Við byrjum samverustundir okkar í Félagsborg eftir sumarfrí, þriðjudaginn 19. september nk. kl. 13:00. Einnig er komið að tímum okkar í íþróttahúsinu á miðvikudögum kl. 10:45-12:00 og er sá fyrsti miðvikudaginn 20. sept. Enn er óvissa um tíma á föstudögum.
Nýir félagar velkomnir í starf og leik.
Stjórnin.
![](/static/files/Auglysingar/1a_eisntaka_vidburdir/kirkjukor-laugalandsprestakalls.jpg)
Kirkjukór Grundarsóknar getur bætt við sig söngvurum
Taktu þátt í öflugu tónlistarstarfi í góðum félagsskap.
Boðið verður upp á námskeið í kórsöng, nótnalestri og helstu hugtökum tónlistar.
Kórinn æfir á mánudagskvöldum.
Skráning og nánari upplýsingar: thorvaldurorn@akirkja.is
![](/static/files/logo_althjodlegt-lionsmerki.png)
Lionsklúbburinn Sif – fundur í kvöld :-)
Nú förum við aftur á stjá, konurnar í Lionsklúbbnum Sif og byrjum haustið með fundi í Félagsborg í kvöld miðvikudaginn 13. september. Húsið opnar kl. 19:30 og fundur hefst kl. 20:00. Farið verður yfir drög að dagskrá vetrarins sem meðal annars er með skemmtilegum uppákomum og verðugum verkefnum fyrir samfélagið. Nýjar konur ávallt velkomnar.
Stjórn Lkl. Sifjar.
![](/static/files/Auglysingar/1a_eisntaka_vidburdir/birkifraesofnun-2021.png)
Birkifræsöfnun fellur niður
Því miður er nánast engin uppskera af birkifræjum Norðanlands þetta árið, þannig að okkar árlegi viðburður á Degi íslenskrar náttúru, fellur niður. Við krossum putta um að uppskeran verði góð haustið 2024 ;-)
Stjórn Lkl. Sifjar.
![](/static/files/Auglysingar/1a_eisntaka_vidburdir/2023/vokuland-vellidunarsetur-sun-salution-augl.-13.09.23-i-bladid.jpg)
Vökuland Vellíðunarsetur
*Jóga og gongslökun. Alla þriðjudaga kl. 17:30–18:45. 5 tíma kort á 12.000 kr./stakur tími á 2.500 kr. Jóga eykur styrk, liðleika og þrek.
*JógaNidra og gongslökun. Miðvikudagana 13. og 20. sept. kl. 18:00-19:15. Stakur tími á 3.000 kr.
*Hljóðbað(Soundbath) miðvikudaga frá 4. okt.-6. des. kl. 18:00-19:00. Hljóðbað er hugleiðslu upplifun þar sem viðstaddir eru „baðaðir“ í hljóðbylgjum. 5 tíma kort á 11.500 kr./stakur tími á 2.500 kr.
*Treystu ferlinu/KakóNidra 15. sept., 14. okt., 13. nóv. og 12. des. kl. 17:30-20:00.
*Flóð & Fjara heldur námskeið í plöntuhengi/vegghengi 7. og 8. október. Leiðbeinandi er Hera Sigurðardóttir. Skráning hjá www.flodogfjara.com (námskeið).
Skráning nauðsynleg í alla viðburði og tíma hjá info@vokulandwellness.is eða í s. 663-0498. www.vokulandwellness.is
Dagskrá Íþróttaviku Evrópu 2023
Hér er dagskráin í pdf skjali