Auglýsingablað 1072. tbl. 12. árg. 22. des. 2020.
![](/static/files/Auglysingar/jol-2019-kvedja-skrifstofu-ofl-2.jpg)
Jólakveðjur
Sendum öllum íbúum Eyjafjarðarsveitar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
Sveitarstjórn og starfsfólk á skrifstofu Eyjafjarðarsveitar.
![](/static/files/logo_esveit.png)
Opnunartími gámasvæðis yfir jól og áramót
Þriðjudaginn 22. desember OPIÐ kl. 13:00-17:00
Föstudaginn 25. desember LOKAÐ
Laugardaginn 26. desember LOKAÐ
Þriðjudaginn 29. desember OPIÐ kl. 13:00-17:00
Föstudaginn 1. janúar 2021 LOKAÐ
Laugardaginn 2. janúar OPIÐ kl. 13:00-17:00
Vaktað gámasvæði er við Hrafnagilshverfi.
Gámasvæðið er lokað utan opnunartíma.
![](/static/files/Auglysingar/bokasafnid-jol-2020.jpg)
Bókasafn Eyjafjarðarsveitar
Fram til 4. janúar verður enginn við á safninu. Eftir það vitum við ekki enn hvernig opnun verður háttað en auglýsing um það kemur á heimasíðu sveitarinnar, esveit.is, og í sveitapóstinn þegar það verður komið í ljós.
Ég vil óska öllum viðskiptavinum safnsins gleðilegra jóla og þakka ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða.
Vonandi verður nýtt ár okkur öllum farsælt og gott bókaár.
Bókavörður.
![](/static/files/Auglysingar/jolahladbord-felags-eldri-borgara-2019.jpg)
Íbúar Eyjafjarðarsveitar
Óskum öllum íbúum Eyjafjarðarsveitar gleðilegra jóla og blessunarríks
nýjárs. Þökkum innilega veittan stuðning á liðnu ári, með ósk um að
næsta ár verði laust við covid og við getum farið að hittast aftur.
Bestu kveðjur, Félag eldri borgara í Eyjafjarðarsveit.
![](/static/files/logo_dalbjorg_nytt.jpg)
Flugeldasala Hjálparsveitarinnar Dalbjargar í Hrafnagilsskóla
Að venju mun Hjálparsveitin Dalbjörg vera með flugeldasölu í Hrafnagilsskóla. Þó með óhefðbundnum sniði í ár. Við erum komin með netsíðu, þar sem hægt er að versla flugelda á netinu og greiða fyrir þá þar. Við munum láta vita þegar pöntunin er klár og þá getur viðkomandi sótt hana við inngang miðstigs í Hrafnagilsskóla.
Netsíðan er dalbjorg.flugeldar.is
Sölustaðurinn mun vera opinn áfram en þar inni gildir grímuskylda og við virðum tveggja metra regluna.
Ekki fleiri en 10 manns verða leyfðir inni í einu.
Fyrir minnstu spurningar minnum við á flugeldasímann – 863-1271.
Opnunartímar verða sem hér segir:
• 28. desember kl. 13:00-22:00
• 29.-30. desember kl. 10:00-22:00
• 31. desember kl. 9:00-16:00
• 5. janúar kl. 19:00-21:00 (Dalborg)
Við viljum hvetja sveitunga okkar og velunnara að nota netsíðuna eins og völ er á, en allir eru auðvitað velkomnir í búðina með grímu og eigin sóttvarnir á hreinu.
Einnig viljum við hvetja fólk sem hyggst mæta á staðinn til að nýta allan opnunartíma flugeldastaðarins svo síður safnist saman hópar og verði mannþröng.
Minnst er að gera fyrripart dags.
Rótarskotin verða á sínum stað – Rótarskot síðasta árs voru gróðursett á Ólafsfirði.
Flugeldasalan er ein af okkar stærstu fjáröflunum og hlökkum við til að sjá eða heyra frá sveitungum okkar.
Kveðja, Hjálparsveitin Dalbjörg.