Nýárskveðja
óskum öllum íbúum Eyjafjarðarsveitar farsældar á nýju ári. þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem var
að líða.
Opnunartími skrifstofu er alla virka daga kl. 10:00-14:00.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
Bókasafn Eyjafjarðarsveitar – Opnunartímar
Mánudagar kl. 9:00-12:30 og 13:00-16:00
þriðjudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Miðvikudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Fimmtudagar kl. 9:00-12:30 og 16:00-19:00
Föstudagar kl. 10:30-12:30
Best er að ganga um dyr að austan (kjallari íþróttahúss) eða um sundlaugarinnganga
og niður á neðri hæð.
Gámasvæði
Opnunartími er þriðjudaga, föstudaga og laugardaga kl. 13:00-17:00.
Skrifstofa Eyjafjarðarsveitar
Jólatrésskemmtun
Hinni árlegu jólatrésskemmtun kvenfélagsins Hjálparinnar, sem fresta þurfti vegna veðurs sl. laugardag, verður haldin í Funaborg laugardaginn
5. janúar 2013 n.k. kl. 13.30-kl. 16.00. Dansað verður í kringum jólatré, fáum góða gesti í heimsókn og svo verða
veitingarnar ekki af verri endanum :-) Hvetjum alla til að mæta, fagna nýju ári og kveðja jólin.
Kvenfélagið Hjálpin
Flugeldamarkaður Dalbjargar
Hjálparsveitin Dalbjörg vill óska sveitungum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir veittan stuðning á nýliðnu ári. Flugeldasala
Dalbjargar verður hinsvegar opin í Hrafnagilsskóla 5. janúar frá kl.16:00-21:00 og 6. janúar frá 12:00-16:00 og hvetjum við sveitunga til þess
að koma og kíkja á okkur og kveðja jólin með flottum flugeldum.
Hjálparsveitin Dalbjörg
Tillaga að Svæðisskipulagi Eyjafjarðar 2012 – 2024
Kynningarfundir 9. og 10. jan. 2013.
í 21. gr. skipulagslaga nr.123/2010 er fjallað um svæðisskipulag en “svæðisskipulag er skipulagsáætlun tveggja
eða fleiri sveitarfélaga þar sem sett er fram sameiginleg stefna þeirra um byggðaþróun og þá þætti landnotkunar sem þörf er
talin á að samræma vegna sameiginlegra hagsmuna hlutaðeigandi sveitarfélaga”. Enn fremur segir svo í 2. mgr. sömu greinar:
“Svæðisskipulag skal taka til svæðis sem myndar heild í landfræðilegu, hagrænu og félagslegu tilliti og getur þannig tekið til heilla
landshluta eða annarra stærri heilda”.
Nú liggur fyrir tillaga svæðisskipulagsnefndar að svæðisskipulagi fyrir Eyjafjarðarsvæðið sem tekur til
sveitarfélaganna sjö við Eyjafjörð þ. e. Fjallabyggðar, Dalvíkurbyggðar Hörgársveitar Akureyrarbæjar, Eyjafjarðarsveitar,
Svalbarðsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps.
Samkvæmt 2. mgr. 23. gr. laganna skal nefndin kynna tillöguna “fyrir almenningi á almennum fundi eða á annan fullnægjandi
hátt” áður en hún er tekin til formlegrar afgreiðslu í nefndinni. Með vísan til þess er boðað til almennra kynningarfunda sem
hér segir:
Miðvikudaginn 9. jan 2013 kl. 20.00 á Akureyri fyrir íbúa Grýtubakkahrepps,
Svalbarðsstrandarhrepps, Eyjafjarðarsveitar, Akureyrarbæjar og Hörgársveitar.
Fundarstaður: Hótel KEA
Fimmtudaginn 10. jan. 2013 kl. 20.00 á ólafsfirði fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar.
Fundarstaður: Tjarnarborg.
Að lokinni kynningu skal nefndin fjalla um og leggja fyrir viðkomandi sveitarstjórnir endanlega svæðisskipulagstillögu. því
næst fær Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar. Hafi stofnunin ekki gert athugasemdir við hana innan fjögurra vikna frá því að hún barst
henni skal auglýsa hana. þá gefst öllum þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta tækifæri til að gera skriflegar athugasemdir við
tillöguna innan sex vikna frests.
Svæðisskipulagsnefnd Eyjafjarðar